Í gær fór ég í fyrsta skipti á ævinni á pólitískan fund. Þrátt fyrir hálfrarævilanga veru mína í sjálftæðisflokknum, var fyrsti flokkspólitíski fundurinn sem ég mæti á hjá Samfylkingunni. Fínn fundur um réttlátara samfélag, misskiptinguna sem hefur verið að aukast hér á landi síðustu 15 ár, hvernig fjármagnstekjuskatturinn hefur orðið til þess að þeir tekjuhæstu skila hlutfallslega minnst til samfélagsins. Það er merkilegt að sjá þessar kúrfur yfir það hverjir borga hlutfallslega mesta tekju- og fjármagnstekjuskatta, og hugsa til þess hversu mikið er búið að berjast gegn hátekjuskattinum, þegar þeir sem eru með alvöru hátekjur eru í raun að borga minnsta hlutfallið.
Ég er sekur um að hafa ekki fylgst nógu vel með, ekki skilið afleiðingar þess sem var að gerast. Ég trúði svo algerlega á frelsið að ég sá ekki að mönnum er ekki treystandi fyrir frelsinu. Kannski er ég ekki lengur pólitískt rekald ég held ég sé strand, kominn lengst upp á eyðieyju, en veit ekki hvar. Ég er ekki alveg tilbúinn að samþykkja það að Samfylkingin ætlar ekkert að gera upp, sama fólkið áfram. Aldrei kaus ég framsókn og þrátt fyrir góða framkomu nýja formannsins framan af er nú farið að skína í gegn að það á að halda áfram með sama valdataflið og alltaf. Kannski enda ég á að kjósa VG, það er samt eitthvað innbyggt í mér samt sem gerir það erfitt, ég myndi líka vilja að það væri meiri endurnýjun þar, en þeir bera nú samt held ég minnsta ábyrgð á ástandinu. Ég nenni ekki að eyða orðum í Frjálslynda flokkinn.
March 6th, 2009 | Category: Uncategorized | Leave a comment
Þau eru vön því að stjórna 300þús manna samfélagi, og það hefur ekki komið kreppa hjá þeim.
January 26th, 2009 | Category: Pólitík | Leave a comment
Þegar ég geng heim, ómar tónlist spiluð á fótstigið orgel út um gluggann hjá nágranna mínum. Ég veit ekki hver hann er en ég hef áður heyrt fréttirnar út á götu. Nú líður að miðnætti og kannski er nágranninn að bíða eftir fréttunum og þetta er músikin sem Rás 1 býður upp á í kvöld. Það er eitthvað heimilislegt við að ganga fram hjá þessu húsi, það minnir á gamla tíma hjá ömmu og afa.
January 18th, 2009 | Category: Lífið | Comments (2)
Hvenær verður ástæða til að kalla saman landsdóm ef það er ekki núna? Árni Mathiesen búinn að með glæpsamlegu kæruleysi að kalla yfir okkur hryðjuverkalög, Geir Haarde búinn að klúðra öllu sem hægt er að klúðra með skeytingar- og dugleysi. Það þarf að losna við þessa menn. Er ekki hægt að höfða til skynsemi alþingismanna og fá þá til aða kalla saman Landsdóm sem samræmi við stjórnarskrána á að dæma ráðherra fyrir embættisverk þeirra.
January 16th, 2009 | Category: Pólitík | Leave a comment
Getur einhver nefnd mér eitt dæmi þar sem ríkisstjórnin hefur unnið vel úr málum síðan í október? Af hverju er þetta fólk svona öruggt um að það sé rétta fólkið til að stjórna á þessum tímum?
January 10th, 2009 | Category: Pólitík | Leave a comment
Er ekki kominn tími á að bankaleynd verði aflétt? Þannig að heiðarlegir bankamenn þurfi ekki að hylma yfir með glæpum eigenda sinna, og annara.
January 8th, 2009 | Category: Pólitík | Leave a comment
Það styttist í kosningar, en hvort sem þær verða eftir 3 mán eða 3 ár veit ég ekki.
Þessi sem sitja í stjórn núna halda sem fastast um stjórnartaumana, halda því jafnvel fram að það þurfi fólk með reynslu. En hver er þeirra reynsla? Þau hafa ágætis reynslu í að koma þjóðabúinu á hausinn, er það það sem við þurfum?
January 4th, 2009 | Category: Pólitík, augljóst | Leave a comment
Ansi hefur maður nú sjóast síðustu mánuði.. Allt sem maður trúði á er horfið eða á hverfanda hveli. Maður neyðist til að endurskoða pólitískar sannfæringar, og ryðja skurðgoðum af stalli.
Mér finnst mig vanta nýjan grunn undir mína pólitík. Ég hef alltaf haft illan bifur á kommúnisma út af ofbeldinu sem er ein af grunnsetningunum þar. Eins finnst mér að kommúnismi og jafnaðarstefna gangi út frá því að maðurinn sé betur þennkjandi en hann er, það er látið eins og græðgi og eigingirni sé ekki til. Og ég hef alltaf haft trú á að kapítalismi væri bestur einmitt af því að hann virkjar græðgina og eigingirnina. Og því frjálsari markaðshyggja því betra, alger græðgi alger draumur.
En hvert stefnir kapitalið, hver er tilgangurinn með auðnum? Hefur hagvöxturinn skilað einhverju? Nú þurfum við að reboota þjóðfélaginu og er þá ekki kominn tími á að leggja af ónýtar aðferðir?
Mig vantar nýja pólítiska trú sem setur frelsi og framgang einstaklingsins fremst, á undan veldi ríkis og fyrirtækja.
Þar sem markaðurinn er frjáls, en hefur samt markmið, önnur en það eitt að græða.
Hvaða markmið á þjóðélagið að hafa? En ríkið? Og hvert er markmið frjálsa markaðarins?
Ég trúi enn á frelsi einstaklingsins, mér finnast hagmunir einstaklingsins vera hagsmunum ríkis yfirsterkari.
Ég skil á milli ríkis og þjóðar, ríkiseign er ekki þjóðareign. Eins og samfélagið er byggt núna á ríkið þjóðina, og getur ráðstafað henni eins og því sýnist. Mér finnst eðlilegra að þjóðin eigi ríkið, hvernig sem hægt er að koma því þannig fyrir.
January 2nd, 2009 | Category: Pólitík | Leave a comment
Sinn er siðurinn í hverju landi, í USA henda menn skóm í rafmagnssnúrur . Á meðan írakar henda skóm í óvininn.
December 16th, 2008 | Tags: skór | Category: Lífið, Íþróttir | Leave a comment
Geir virðist forðast það að taka ákvarðanir, hefur ekki bein í nefinu til að hreinsa til í seðlabankanum og FME. Hann lítur á það sem sitt einkamál hvað ríkistjórnin gerir, það er bara dónaskapur að spyrja hann útí ákvarðanir sem setja ríkið og landsmenn á hausinn.
Það eina sem getur bjargað pólitísku lífi Geirs er að hann reki Davíð núna og boði til kosninga strax í vor. Hann þarf að sýna að hann hafi einhvern dug.
Menn tala um að hann sé hræddur við að Davíð kljúfi flokkinn. Ef Geir er hræddur þá hefur hann ekki dug til að gegna valdamesta embætti þjóðarinnar. Margir virðast halda að Davíð hafi svo marga stuðningmenn að hann geti hæglega afmáð flokkinn ef hann vill. En er ekki stuðningurinn við Davíð partur að flokksaganum og skilyrðilausri hlýðni við forystuna? Spurning hvort fylgispektin nái til þess að kljúfa flokkinn og gera uppreisn gegn forystuna. Forystan þarf samt sem áður að sýna að hún hafi einhvern dug í sér.
December 5th, 2008 | Category: Pólitík | Leave a comment